Eflum byggð - fræðsluverkefni á Blönduósi og Skagaströnd, 2008 - 2010
Fræðsluverkefninu Eflum byggð lauk vorið 2010. Þá hafði verkefnið staðið yfir frá því haustið 2008. Verkefnið fékk styrk úr sjóði vegna tímabundins aflasamdráttar á landsbyggðinni sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið veitti.
Eflum byggð var samstarfsverkefni Farskólans, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Hólaskóla - háskólans á Hólum. Gunnar Tryggvi Halldórsson var verkefnastjóri Eflum byggðar. Skýrslu um verkefnið má finna hér til hægri á síðunni.


