Hér að neðan er að finna þau námskeið sem komin eru á dagskrá Farskólans. Ef smellt er á skoða birtist nánari lýsing á viðkomandi námskeiði og skráningarform sem viðkomandi getur fyllt út og hefur þá skráð sig til þátttöku á námskeiðinu.
ATH. Flest námskeiðin er hægt að halda hvar sem er á Norðurlandi vestra þar sem aðstæður og lágmarksfjöldi þátttakenda er til staðar.
Hafið samband við Farskólann ef þið hafið einhverjar óskir eða hugmyndir um námskeið.
Námskeið á dagskrá
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - Sauðárkrókur
Námstækni, sjálfsþekking, íslenska, danska, enska, valáfangar tungumálanáms, stærðfræði. Nánari lýsingar má sjá í námskránni á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Bóknám - almennar greinar
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - Siglufjörður
Námstækni, sjálfsþekking, íslenska, danska, enska, valáfangar tungumálanáms, stærðfræði. Nánari lýsingar má sjá í námskránni á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Hvar: Siglufjörður / HofsósFlokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Bóknám - almennar greinar
Að taka próf - undirbúningur og tækni
Farið verður í helstu þætti prófundirbúnings með áherslu á skipulag og próflestur. Einnig er farið í próftækni þar sem t.d. verður fjallað um ritgerðarspurningar og krossaspurningar. Fjallað verður stuttlega um prófkvíða. Ekkert gjald.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Persónuleg færni
Fagnámskeið – fyrir starfsmenn í heilbrigðis- og félagsþjónustu – fyrsti hluti - Hvammstangi
Persónuleg markmiðasetning, starf af lífi og sál, frumkvæði og framtakssemi, vinnuumhverfið, hreinlæti og snyrtimennska, að efla sjálfstraust og öryggi, samtalstækni, gagnrýni, samskipti, bjartsýni og baráttuvilji og fl.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: BlönduósFlokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Starfstengd námskeið
Grunnmenntaskólinn - Skagafjörður
Námið er ætlað fullorðnu fólki sem er eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu að baki.
Sjálfsstyrking og samskipti, námstækni, framsögn, íslenska, tölvur, enska, stærðfræði, verkefnavinna, þjónusta, náms- og starfsráðgjöf, færnimappa og mat á námi og skólastarfi.
Ath. að dagsetningar eru ekki endanlegar.
Hvar: SauðárkrókurFlokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Komdu þér á framfæri - færnimappa og ferilskrá
Á námskeiðinu er farið yfir þau atriði sem skipta máli þegar gera á góða atvinnuumsókn og ferilskrá. Einnig verður farið yfir þau atriði sem skipta máli í atvinnuviðtali og almennt hvað hafa ber í huga við atvinnuleit.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Persónuleg færni
Fagnámskeið fyrir starfsmenn í félags- og heilbrigðisþjónustu, annar hluti - Blönduós
Í Fagnámskeiði 2 er áhersla lögð á eftirlit, umönnun og aðstoð við skjólstæðinga (38 kest). Auk þess er valgrein sem námsmenn velja sjálfir og tengist starfi þeirra sérstaklega.
Hvar: BlönduósFlokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Ljósmyndun - byrjendur
Farið er ítarlega í allar helstu stillingar á stafrænu myndavélinni, m.a. ljósop, hraða, White balance, ISO, ljósmælingu, pixla, jpg/raw o.m.fl.Tekin eru fyrir helstu atriði varðandi linsur og filtera.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tómstundir
Ljósmyndun – framhald
Framhald af fyrra námskeiði sem. Fjallað áfram um myndbyggingu, nemendur fá tilsögn á stúdíóljósum og öðrum búnaði í stúdíói. Sýnt hvernig best er að geyma myndir og sérstakt gagnaflutningaforrit er kynnt.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tómstundir
Áhugasviðsgreining - Hvar liggur þitt áhugasvið?
Áhugasviðsgreiningar veita mikilvægar upplýsingar með tilliti til ánægju í lífi og starfi. Þær stuðla að bættri sjálfsþekkingu og auka skilning á þeim möguleikum sem eru fyrir hendi hvað varðar náms- og starfsval. Ekki er tekið gjald fyrir þessa þjónustu.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Persónuleg færni, Ráðgjöf og þjónusta
Vinnubrögð í háskólanámi
Viltu verða öflugri námsmaður, hafa stjórn á tímanum og fá meira út úr náminu þínu? Námskeiðið er ætlað þeim sem eru í háskólanámi og óska eftir að bæta vinnubrögð sín. Náms- og starfsráðgjafi Farskólans kennir á þessu námskeiði. Námskeiðið verður haldið þegar háskólanemum hentar á haustönn. Ekkert gjald.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Persónuleg færni
Náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum
Viltu styðja við bakið á þínu fólki og hvetja til símenntunar? Tilgangur ráðgjafar á vinnustöðum er að hvetja starfsmenn til virkrar símenntunar og starfsþróunar. Ráðgjöfin felst m.a. í því að hvetja starfsmenn til að bæta við sig þekkingu og færni, veita upplýsingar um möguleika í umhverfinu og aðstoða við greiningu á áhugasviði og hæfni.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Persónuleg færni
Fagnámskeið fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu - fyrsti hluti - Blönduós/Skagaströnd
Persónuleg markmiðasetning, starf af lífi og sál, frumkvæði og framtakssemi, vinnuumhverfið, hreinlæti og snyrtimennska, að efla sjálfstraust og öryggi, samtalstækni, gagnrýni, samskipti, bjartsýni og baráttuvilji og fl.
Hvar: Flokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Starfstengd námskeið
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum - Blönduós og/eða Skagaströnd
Námstækni, sjálfsþekking, íslenska, danska, enska, valáfangar tungumálanáms, stærðfræði. Nánari lýsingar má sjá í námskránni á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Hvar: Flokkur: Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Bóknám - almennar greinar
Silfursmíði
Þátttakendur læra að smíða ýmiss konar skartgripi úr silfri, með steinum eða án. Hægt að halda það á öllu Norðurlandi vestra.
Hvar: SauðárkrókurFlokkur: Tómstundir
Prinsessugreiðslur
Hárgreiðslunámskeið fyrir mömmur og pabba. Foreldrar lenda oft í því að fá óskir um alls kyns greiðslur áður en farið er af stað í leikskóla, skóla eða annað. Á námskeiðinu verða kenndar nokkrar einfaldar greiðslur og fólki gefinn kostur á að æfa sig.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tómstundir
Tálgun í ferskan við - vinnustofa
Þetta námskeið er byggt á námskeiðunum „Lesið í skóginn – tálgað í tré“ sem haldin hafa verið víða um land frá árinu 1999. Lögð er áhersla á að þátttakendur læri að tálga með hníf af öryggi og kunna að umgangast verkfærin, hirða þau og brýna.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tómstundir
Íslenska fyrir útlendinga 1 - Icelandic for foreigners 1
Íslenska 1 er fyrir algera byrjendur. Icelandic 1 is for absolut beginners. Allir þættir tungumálsins þjálfarði: skilningur, hlustun, tal, lestur og ritun.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Enska 1 – algerir byrjendur
Megináhersla er lögð á talmálið; að byggja upp orðaforða og grunnatriði málfræði. Lögð er áhersla á talæfingar og framburð. Stefnt er að því að námsmenn öðlist það sjálfstraust sem þarf til að tala ensku. Námsefni, möppur og kaffi er innifalið í verði.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Enska 2 – talmál fyrir lengra komna
Áhersla er lögð á að æfa talmálið enn frekar. Námsmenn lesa texta og vinna verkefni. Farið í nokkra málfræði. Námsefni, möppur og kaffi er innifalið í verði.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Enska 3 - brú
Talmál, framburður, ritun, lestur, málfræði. Þetta námskeið er góður undirbúningur fyrir frekara nám í ensku, til dæmis ensku framhaldsskólanna.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Dyravarðanámskeið
Samskipti dyravarða og lögreglu, reglugerð um löggæslu á skemmtistöðum og borgaraleg handtaka. Fræðsla um fíkniefni. Tryggingar í starfi. Réttindi og skyldur, slysahjálp. Brunavarnir. Sjálfsvarnaræfingar
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Starfstengd námskeið
Allt í einum potti
Stutt fræðsla um hin ýmsu hráefni og krydd sem eru nauðsynleg við matargerð s.s. grænmeti, fersk krydd, baunir, linsur, hnetur og kryddjurtir.
Hvar: Flokkur: Matreiðsla
Glermálun
Kennd eru undirstöðuatriði í glermálun. Notast er við mjög fallega glæra glermálningu frá Frakklandi. Málað er á ýmsa glermuni, bæði eftir teiknuðu mynstri eða frjálst. Einnig læra þátttakendur að blanda málningu saman með ýmsum hætti, t.d. á platta og diska.
Hvar: Flokkur: Tómstundir
Talnaspeki fyrir byrjendur og lengra komna
Á námskeiðinu læra þátttakendur að reikna út persónuleika sinn; kanna möguleika sína og hindranir, kosti og galla, samskipti við aðra, köllun sína í lífinu og þau markmið sem henta hverjum og einum og leiðir til að ná þeim.
Hvar: Flokkur: Tómstundir
Íslenska fyrir útlendinga 2 - Icelandic for foreigners 2
Lögð er áhersla á talað mál til daglegrar notkunar með umræðum í tímum. Allir þættir tungumálsins þjálfaðir: skilningur, hlustun, tal, lestur og ritun Áhersla er lögð á að byggja upp frekari orðaforða.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Íslenska fyrir útlendinga 3 - Icelandic for foreigners 3
Þetta námskeið er framhald af Íslensku 2. Lögð er áhersla á talað mál til daglegrar notkunar með umræðum í tímum. Viðfangsefnin eru t.d. áhugamál, staðir á svæðinu, fatnaður, verslanir, tilfinningar, líkaminn og heilsan.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tungumál
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum - Endurmenntun HÍ
Þetta námskeið er skipulagt af Starfsmennt. Endurmenntun HÍ sér um kennsluna. Kennt er í fjarfundabúnaði í Námsver á Norðurlandi vestra. Gert er ráð fyrir fjórum þátttakendum á hverjum stað. Þessi námsleið er ætluð samstarfsfólki stjórnenda sem þurfa að búa yfir fjölbreyttri hæfni til að auðvelda framgang verkefna og tryggja efndir.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Endurmenntun Háskóla Íslands
Að búa til styttu - Pretex
Þátttakendur koma saman í versluninni Hlín eina kvöldstund og móta eina styttu úr pretexefni, en það efni þolir frost.
Hvar: HvammstangiFlokkur: Tómstundir
Föndurkvöld á Hvammstanga
Föndur af ýmsu tagi, einu sinni í viku í október og nóvember á Hvammstanga.
Hvar: HvammstangiFlokkur: Tómstundir
Fluguhnýtingar
Á þessu námskeiði læra þátttakendurað hnýta Laxa og silungaflugur. Námskeiðið er öllum opið og engrar forkunnáttu er krafist.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tómstundir
Hraðlestur - námskeið
Á helgarnámskeiðinu fer kennari í gegnum grunntæknina, af hverju við lesum almennt svona hægt og hvernig hægt er að rúmlega tvöfalda lestrarhraða án þess að skilningur detti niður. Kenndar verða leiðir til að finna aðalatriði með skjótum hætti og glósutækni.
Hvar: Flokkur: Persónuleg færni
Kökuskreytingar fyrir lengra komna
Framhald af síðasta námskeið í kökuskeytingum.
Málað á marsípan, marsípanblóm. Skraut og skálar úr súkkulaðidropum.
Hvar: Flokkur: Matreiðsla
Rekspölur 1 - fjarkennt. Frá Starfsmennt fræðslusetri
Á námskeiðinu er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega innviði. Þetta nám hefur reynst mörgum góður grunnur að frekara námi eða þátttöku í félagsstörfum.
Hvar: Flokkur: Starfstengd námskeið
Ritun fundargerða
Farið er yfir það hvernig best er að skrifa góða og skýra fundargerð. Fundargerðir eru heimildir um það sem fór fram á fundi; hvort sem er í nefndum sveitarfélaga eða á öðrum vettvangi funda.
Hvar: Flokkur: Almenn færni
Ritun fundargerða
Farið er yfir það hvernig best er að skrifa góða og skýra fundargerð. Fundargerðir eru heimildir um það sem fór fram á fundi; hvort sem er í nefndum sveitarfélaga eða á öðrum vettvangi funda.
Hvar: Flokkur: Almenn færni
Tölvan mín, ég og Internetið...
Námsmenn hafa áhrif á það hvaða námsþættir eru kenndir. Netnotkun; tölvup´sotur, Facebook og fl.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Fjölmennt - fullorðinsfræðsla fatlaðra
Hollir skyndibitar
Námsmenn læra að búa til holla skyndibita. Sem dæmi má nefna brauð í ofni, fajita með hakki og salsa og súpur eins og tómatsúpu með brauðtenginum.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Fjölmennt - fullorðinsfræðsla fatlaðra
Lestur ársreikninga
Kynntar eru þær meginreglur sem gilda um efni og framsetningu ársreikninga. Þá er farið í greiningu ársreikninga með aðstoð kennitalna.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Fjármál og rekstur
Prjónanámskeið á Blönduósi
Helgarnámskeið með dönsku prjónahönnuðunum Helgu Isager, Lotte Kjær og Helgu Jónu úr Nálinni. Kennt er á ensku, dönsku og íslensku.
Helga Isager er danskur prjónahönnuður sem hefur gefið út fjölda bóka og er með eigin framleiðslu á eðal prjónagarni...
Hvar: BlönduósFlokkur: Tómstundir
Listasmiðja - jólaþema
Í Listasmiðjunni verður unnið með pappír, ull og margt fleira skemmtilegt sem tengist jólunum.
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Fjölmennt - fullorðinsfræðsla fatlaðra
Minningarbók með myndum - ,,Scrapbooking"
Að búa til minningarbækur eða albúm (Scrapbook) nýtur mikilla vinsælda hér heima og erlendis. Hér sameinast ljósmyndun, minningar og hugmyndaflug í persónulegt listaverk sem allir hafa gaman að skoða. Allir geta „scrappað". Ef rétt er að farið lifa minningarnar kynslóðanna á milli.
Hvar: Flokkur: Tómstundir
Námskeið í gangi
Tölvur - námskeið fyrir iðnaðarmenn (og fleiri)
Hér er um 60 stunda tölvunámskeið að ræða. Farið er í Windows (10 kest), Word eða ritvinnslu (20 kest), Excel eða töflureikni (20 kest) og Internet og tölvupóst (10 kest).
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Tölvunám, Almenn færni
Náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna einstaklinga
Langar þig í frekara nám eða viltu styrkja þig í starfi?
Viðtal við náms- og starfsráðgjafa sem veitir einstaklingum ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals
Hvar: Í boði á öllum stöðumFlokkur: Ráðgjöf og þjónusta, Persónuleg færni
Rekspölur 1 - Frá Starfsmennt fræðslusetri
Hér er lögð áhersla á persónulega hæfni, almenna þekkingu og samspil einkalífs og starfs ásamt umfjöllun um samfélagslega innviði.
Hvar: Flokkur: Starfstengd námskeið
