28.06.10

Höfundur: Bryndís

Jens, Gunnar og Skúli.

Ásgerður, Þorkell, Gréta Sjöfn, Ingibjörg.

Þátttakendur á fundinum.

Rakel og Rannveig.

Stefnumótunarfundur haldinn á Blönduósi

Vorfundur Farskólans - miðstöðvar símenntunar á Norðurlandi vestra var haldinn á Blönduósi 25. júní. Vorfundurinn er stefnumótunarfundur fyrir komandi skólaár. Farið var yfir starfsemi vorannar; hvaða námskeið voru kennd, fjölda þátttakenda og kennslustunda svo dæmi séu tekin.

Gestur fundarins var Ragnhildur Jónsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Þekkingarneti Austurlands á Höfn í Hornafirði og fór kynning hennar fram í fjarfundabúnaðinum í nýja Námsverinu á Blönduósi en Ragnhildur var í Reykjavík. Ragnhildur kynnti fræðsluverkefnið Nýjar leiðir sem hefur verið í gangi á Höfn frá 2008. Ragnhildur sagði meðal annars frá því að þau hefðu lagt áherslu á að fræða fullorðna einstaklinga um lesblindu og hún sagði frá þeim fyrirtækjum sem hefðu verið stofnuð á Höfn í kjölfar námskeiðsins.

Á vorfundinum var ákveðið að Vika símenntunar næsta haust skildi helguð lesblindu fullorðinna en Farskólinn hefur áður haft þetta þema í Viku símenntunar. Ákveðið var að sækja um styrk til Starfsmenntaráðs og verður unnið að því í sumar ásamt því að finna samstarfsaðila.